Efnisyfirlit
Stefnan
Drög að stefnu - sem er hvorki heilög né óbetranleg.
Alþýðuhópurinn Fólk fyrir Fólk, F-hópurinn.
1. Koma á þverpólitísku persónukjöri.
Fólk kýs fólk og fólkið ræður; koma á persónukjöri þar sem hver og einn verður að standa og falla með orðum sínum verkum og gjörðum en getur ekki falið sig á bak við flokksbákn.
2. Koma á algeru fólksræði þar sem hver og einn getur orðið virkur stjórandi með því að fela áhveðnum einstaklingi sitt atkvæði og umboð, hvort sem er í sveitastjórn eða á alþingi Íslands. Hægt verður að færa sitt umboð á milli manna ef traust á núverandi umboðsmanni breytist. Það verður heimilt að gera þetta ársfjórðungslega ef fólk sér ástæðu til breytinga. Það er gert í heimabanka.
Aðvelda skal þjóðarathvæðagreiðslu og að öll stærri mál fari í þjóðarathvæði,
3. Gera Ísland að einu kjördæmi þar sem öll athvæði eru jöfn. Ísland verði eitt kjördæmi með jöfnu atkvæðavægi óháð búsetu.
Draga skal hvern stjórnmálamann fyrir dómstóla sé ástæða til og verði ekki hægt að fela sig á bak við flokks- eða fylkingarstefnu heldur verði krafist þyngstu refsingar yfir hverjum þeim sem gerist sekur um landráð.
4. Fækka skal alþingismönnum í 31 og skal ráða hvern ráðherra algerlega faglega, einnig skal öll ráðning embættismanna vera á algerum faglegum nótum en ekki skipt milli stjórnmálahreyfinga. Verði þingmaður ráðinn ráðherra skal hann segja af sér þingmennsku.
Leggja skal embætti forseta niður og skal forsetisráðherra verða æðsti yfirmaður landsins. Skal hann kosinn beinni kosningu.
5. Ísland skal vera algerlega sjálfstætt ríki og ekki bundið neinum alþjóðlegum samtökum hvort sem er verslunar-, viðskipta- eða hernaðarbandalögum því það hefur aldrei verið hægt að sjá fyrir hver verði lokastefna hvers bandalags, heldur skal semja um samvinnu við hvert land fyrir sig í einu sem verði hægt að endurskoða reglulega.
6. Öll auðæfi og gæði landsins verði skilyrðislaus sameign hvers og eins Íslendings og verði eignaraðild erlendra aðila mjög takmörkuð hvort sem er á landi eða legi.
Erlendir aðilar mega aldrei eiga meir en 49% í neinu fyrirtæki sem rekið á Íslandi. Íslendingar verða alltaf að fara með ráðandi stöðu.
7. Slá skal íslensku krónuna í hreint gull og skal hver gullkróna vera 7,77 grömm og skal verðmið hennar vera í þyngd þorsks, vatns, kílovatts, eða annara auðlinda okkar.
8. Ef við verðum í einhverju bandalagi þjóða þá verðum við altaf að geta ráðir hverjir fái dvalar- og atvinnuleyfi og hverjir ekki. Þetta er nauðsinlegt vegna smæðar okkar.
9. Gera skal ísland að algeru fríverslunarríki þar sem landfræðileg staða okkar gerir okkur best til þess fallin allra landa og þá munu þessi samtök hverju nafni sem þau nefnast ólm í að gera viðskipti við okkur og mismunum engum í hvaða heimsálfu sem er. Við eigum eftirsóknarverðustu vörur heims: Mat, vatn og orku. Gera skal allt sem við getum með því að fullvinna allt sem við seljum frá okkur og gera á fyrirtækjum auðveldara fyrir að fullvinna allt til útflutnings.
10. Fullvinna skal öll lands auðæfi áður en til útflutnings kemur sem frekast er unnt og koma á lokaframleiðslu á sem flestu sem hægt er bæði í matvælum sem og iðnaði.
Stefnt skal á að Ísland verði sér algerlega sjálfstætt orkulega á eins stuttum tíma og mögulegt er; á innan við 10 árum. Það er ekki eftir neinu að bíða.
11. Sérstaklega skal gæta sín á fyrrum nýlendusinnum sem hafa haft aðrar þjóðir sem þrælhaldnar nýlendur. Í þeirra þjóðarsál er inngróið að það sé eðlilegt að komast yfir auðæfi annara landa með ráni og rupli og yfirgangi, frekju, þjófnaði og órétti hverskonar. Skal Ísland vera ljós til að rétta fyrrum nýlendur kúgaranna og hjálpa þeim að krefjast réttar sins. Landið skal skína sem réttlætisland með því að engin sjórnmálaspillingaröfl ráði ríkjum eða hagsmunaklíkur heldur þjóðin sjálf og skal hún ráða hverjir fái hér atvinnu og búsetu en ekki einhver gerspilt eiginhagsmunasamtök erlendra manna og ríkja.
12. Aðskilja skal ríki og kirkju og krefjast skal leigu af löndum sem kirkjan komst yfir með ólöglum hætti þótt aldir séu liðnar þá skal skuld við fólkið greitt. Það er réttlætismál.
13. Komið verði á algerum aðskilnaði milli löggjafa og framkvæmdavalds. Ekki bara í orði heldur í öllu verki skal sá aðskilnaður vera algjör og augljós. Koma skal öllum landráðamönnum á bak við lás og slá séu þeir sekir fundnir, undirtekningarlaust.
14. Breyta skal fangelsislögum landsins og skal fangi við fyrsta dóm alltaf fara í betrunarvist en hann skal taka út sína hegningartíma; skipta skal þrepunum í fjóra liði og skal alltaf vera óvinsælt að vera í fangelsi og skal engin líta á þau sem annað en vonda staði. 4ða og síðasta stigið skal vera í úteyjum þar sem auðveldara er að gæta fanga og kostnaðarminna. Þangað skal engin stefna. Skulu vera þar hlý og góð hús. Fangar verða að vinna og verður matur bæði hollur og bragðvondur.
15. Skulu allir sem þiggja atvinnuleysisbætur skila vinnu til samfélagsins til að fá bæturnar. Þetta mun byggja upp landið og efnahag þess. Það er engum hollt að vera aðgerðalaus.
16. Standa skal sérstaklega vörð um velferðar- og tryggingarkerfi landsins og skal gera eins mörgum öryrkjum og unnt er að fá vinnu við sitt hæfi. Þetta er mjög auðveldlega hægt. Eina sem þarf er vilji og fólk til að tala fyrir þá sem minna mega sín eða eru sjúkir.
17. Skal úthluta einum og hverjum Íslendingi fiskkvóta og getur hann ráðstafað sínum árskvóta að vild það árið en aldrei hægt að færa milli ára.
18 Aflétta skal bankaleynd sem er til þess fallin að fela svindl og svínarí og skal allri leynd til þeirra sem fengu 50 miljónir eða meir og voru ekki með skotheld veð gerð opinber og verði gerð grein fyrir þeim.
19. Lækka skal rafmagnsverð til alls iðnaðar svo hann megi stækka og dafna og verða útfluttningshæfur. Sérstaklega á þetta við ræktunaraðila þar sem við eigum að vera sjálfum okkur nóg með grænmetis-, blóma- og kornrækt og rækta fræ til olíugerðar og bræða allan fiskúrgang og kjöt. Það er ekkert annað en olía á skipin okkar og áburður fyrir gróðurinn. Látum nýtnina ganga fyrir.

